Þriðja gráða
EAN13
9788728542095
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Kvennamorðklúbburinn
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Þriðja gráða

SAGA Egmont

Kvennamorðklúbburinn

Livre numérique

Í þriðju bókinni um Kvennamorðklúbbinn komast hetjurnar heldur betur í hann
krappann. Og ein þeirra á sér leyndarmál sem getur orðið þeim öllum að
aldurtila.

Rannsóknarlögreglukonan Lindsay Boxer verður vitni að sprengingu og í
kjölfarið uppgötvar hún röð morða framin með aðeins þriggja daga millibili. Að
venju leitar hún til vinkvenna sinna í Kvennamorðklúbbnum, sem eru boðnar og
búnar til að aðstoða hana við að leysa málið. En skyndilega eru morðingjarnir
komnir með meðlim Kvennamorðklúbbsins í sjónlínuna og í ljós kemur að ein
þeirra geymir leyndarmál sem er svo hræðilegt að þær eru allar í hættu. Hver
þeirra skyldi það vera? Mun Kvennamorðklúbburinn lifa af?

Kvennamorðklúbburinn

Kvennamorðklúbburinn er röð spennusagna eftir James Patterson. Þær eiga það
allar sameiginlegt að gerast í San Francisco og innihalda sömu fjórar
aðalpersónurnar, konur sem láta ekkert stoppa sig til að réttlætið nái fram að
ganga. Árið 2007 voru gerðir sjónvarpsþættir sem byggðu á bókunum og báru sama
nafn.

James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans
hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda
verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem
efla læsi í skólum víða um Bandaríkin.

Andrew Gross er bandarískur rithöfundur, best þekktur fyrir samstarfsverkefni
sín með James Patterson. Þar á meðal eru tvær bækur í ritröðinni
Kvennamorðklúbburinn.

Bókin fær fjórar og hálfa stjörnu hjá notendum Goodreads.
S'identifier pour envoyer des commentaires.