Elling: Fugladansinn
EAN13
9788727050836
Éditeur
SAGA Egmont
Date de publication
Collection
Elling
Langue
islandais
Fiches UNIMARC
S'identifier

Elling: Fugladansinn

SAGA Egmont

Elling

Livre numérique

Önnur bókin í seríunni um Elling er sjálfstætt framhald þeirrar fyrstu,
Paradís í sjónmáli. Þegar hér er komið við sögu er aðalpersónan Elling kominn
á geðsjúkrahús, þar sem hann deilir herbergi með manni að nafni Kjell Bjarne.
Með þeim tveimur tekst fljótt ansi sérstök vinátta, þar sem báðir eiga það
sameiginlegt að hafa verið mjög einmana í gegnum tíðina. Á spítalanum tekur
Elling einnig til við að skrifa hugsanir sínar og hugleiðingar niður, nokkuð
sem gefur lesandanum enn betri innsýn inn í sérkennilegan hugarheim hans. Hann
fær það verkefni að skrifa um ferðalag sitt með móður sinni til Benidorm, en
það ferðalag endaði með ósköpum.

Kvikmyndin "Mors Elling" var gerð eftir bókinni.

Ingvar Even Ambjørnsen-Haefs (1956) er norskur rithöfundur, best þekktur fyrir
„Elling“ ritröðina, sem inniheldur meðal annars bækurnar Paradís í sjónmáli og
Fugladansinn. Allar bækur hans innihalda persónur á jaðri samfélagsins og hann
hefur gagnrýnt ýmis samfélagsmein í verkum sínum, ekki síst norska
geðheilbrigðiskerfið. Bók hans „Brødre i blodet“ varð að bíómyndinni Elling,
sem var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda myndin árið 2001.
Þar fyrir utan hafa bækur hans unnið til fjölda verðlauna, m.a.
menningarverðlauna Telenor árið 2002. Ingvar Ambjørnsen segist hættur
ritstörfum og býr nú í Þýskalandi með konu sinni.

Bókin fær 3,9 stjörnur af 5 mögulegum hjá notendum Goodreads.

„Sagan af Elling og Kjell Bjarne (...) vermir hjartað með frásögn af vináttu
sem er jafn full af húmor og af dapurleika.“ – John Hatley, Goodreads
S'identifier pour envoyer des commentaires.